Alþjóðlegt samstarf
Alþjóðlegt samstarf
Heilbrigðisráðuneytið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi í þeim málaflokkum sem undir ráðuneytið heyra. Samstarfið er flokkað hér í þrjá meginhópa þ.e. norrænt samstarf, Evrópusamstarf og annað alþjóðlegt samstarf.
Norrænt samstarf er samstarf á vettvangi Norðurlandaráðs o. fl. norrænna stofnanna.
Evrópusamstarf er samstarf við önnur svæði Evrópu en Norðurlöndin og þá aðallega samstarf á vettvangi EES.
Í Brussel situr sameiginlegur starfsmaður heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis og heldur úti Brusselsetri vefsins til upplýsingar um það sem efst er á baugi hverju sinni á vettvangi EES-samstarfsins varðandi málaflokka þessara ráðuneyta. Brusselsetrið er skipt upp eftir málaflokkum hvors ráðuneytis um sig.
Annað alþjóðlegt samstarf
er allt alþjóðlegt samstarf sem ekki telst til Norræns eða Evrópusamstarfs og er þá aðallega samskipti við Alþjóða heilbrigðismálastofnunina (WHO) og fleiri stofnanir Sameinuðu þjóðanna.
Yfirlýsingar og stefnumótandi áætlanir:
ATH. Skjölin eru á pdf formi og opnast í nýjum glugga

