Fréttir

Guðbjartur Hannesson tekur við lyklavöldum heilbrigðisráðuneytisins

Guðbjartur Hannesson nýr heilbrigðisráðherra - 2/9/2010

Guðbjartur Hannesson er nýr heilbrigðisráðherra. Hann tók við embætti á ríkisráðsfundi í dag. Lesa meira
 

Heilsuverndarstöðin öðlast nýtt líf - 1/9/2010

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leita samninga um leigu á hluta húsnæðis Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg undir starfsemi Landlæknis og Lýðheilsustöðvar. Unnið er að sameiningu embættanna tveggja og gert er ráð fyrir að hún verði að veruleika um áramótin.

Lesa meira
 

Starfshópur um bætt heilbrigði ungs fólks - 1/9/2010

Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem leita á leiða til að bæta heilbrigðisþjónustu og heilbrigði ungs fólks á aldrinum 14-23 ára. Þörf er á að hlúa betur að þessum aldurshópi.
Lesa meira
 

Aðgerðir gegn misnotkun á ritalini - 1/9/2010

Heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á methýlphenídati, sem birtist umfram allt í mikilli notkun á Ritalini og Ritalin Uno.

Lesa meira
 
Undirritun yfirlýsingarinnar

Markvissari heilbrigðisþjónusta - 1/9/2010

Heilbrigðisráðuneytið og hópur vísindamanna við Háskóla Íslands, Landspítalann, Háskólann í Árósum og Háskólann í Reykjavík ætla að að hefja samstarf um verkefni í upplýsingatækni til að gera heilbrigðisþjónustu markvissari og ódýrari. Yfirlýsing um samstarfið hefur verið undirrituð.

Lesa meira
 

Sett ráðuneytisstjóri til eins árs - 1/9/2010

Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, fer í eins árs námsleyfi frá og með 1. október næstkomandi. Guðríður Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra, hefur verið sett í embætti ráðuneytisstjóra til sama tíma.
Lesa meira
 

Hert löggjöf gegn áfengisauglýsingum - 31/8/2010

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra um að áfengislögum verði breytt þannig að bann við áfengisauglýsingum verði  virt.

Lesa meira
 

Segulsvið í íbúðum hér á landi svipað og í Svíþjóð - 27/8/2010

Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsvið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð, að því er segir í frétt á vef Geislavarna.

Lesa meira
 
Samninginn undirrituðu Gunnar Svavarsson, stjórnarformaður hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., og Arinbjörn Friðriksson, stjórnarformaður SPITAL hópsins

Samið um frumhönnun nýs Landspítala - 27/8/2010

Samkomulag um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem í sumar bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., var undirritað í dag.

Lesa meira
 

Fleiri komur til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra - 26/8/2010

Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009, að því er fram kemur í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði.

Lesa meira
 

Taka þarf á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum - 24/8/2010

Taka þarf harðar á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum á Íslandi. Þetta kom m.a fram í setningarávarpi heilbrigðisráðherra á norrænni ráðstefnu um áfengis- og fíkniefnarannsóknir, sem sett var í Reykjavík í gær.

Lesa meira
 

Jákvæður rekstur Landspítala - 23/8/2010

Landspítalinn skilaði rúmum 35 milljónum króna í rekstrarafgang á fyrstu sex mánuðum ársins 2010, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest.

Lesa meira
 

Efling heilsugæslunnar – drög að skýrslu kynnt - 23/8/2010

Drög að áfangaskýrslu um eflingu heilsugæslunnar hafa verið birt á vef heilbrigðisráðuneytisins. Öllum gefst kostur á að koma með athugasemdir.

Lesa meira
 
Undirritun samnings í Færeyjum

Samstarf Íslands og Færeyja í heilbrigðismálum eflt - 20/8/2010

Samstarf Íslands og Færeyja í heilbrigðismálum hefur verið eflt með nýjum samningi milli Landspítalans í Reykjavík og færeysku landstjórnarinnar.

Lesa meira
 

9 milljónir í rannsókn á áhrifum eldgoss á heilsu - 18/8/2010

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðis-, umhverfis- og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um 9 milljóna króna framlag til rannsóknar á áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á heilsu manna og dýra.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica