Tillögur að breyttri skipan stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins

22/1/2010

Stýrihópur sem skipaður var þann 26. ágúst 2009 af þáverandi heilbrigðisráðherra Ögmundi Jónassyni, skilaði tillögum sínum að breyttri skipan stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins til Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra í dag föstudaginn 22. janúar 2010.

Stýrihópnum var falið að endurskoða hlutverk og verkefni eftirlits- og stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins í þeim tilgangi að efla starfsemi þeirra með aukinni samhæfingu. Stýrihópinn skipuðu þau Stefán Ólafsson, formaður, Sæunn Stefánsdóttir, Ragnheiður Haraldsdóttir og Vilborg Þ. Hauksdóttir.

Breytt skipan stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins : Tillögur
(pdf. 3.7MB – opnast í nýjum glugga)



Þetta vefsvæði byggir á Eplica