Reglugerðir
Reglugerð nr. 199/1983 um starfsréttindi og starfssvið lyfjatækna með áorðnum breytingum skv. reglugerð nr. 379/1992
Starfsréttindi.
1. gr.
2. gr.
[Rétt til að öðlast starfsleyfi, sbr. 1. gr., hefur sá einn sem lokið hefur prófi við lyfjatækna-braut framhaldsskóla sem metið er gilt af heilbrigðisyfirvöldum.
Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 196/1983 um Lyfjatæknaskóla Íslands með áorðnum breytingum.]1)
1) Rg. 379/1992, 1.gr.
Starfssvið.
3. gr.
Starfssvið lyfjatækna eru störf við lyfjaafgreiðslu og lyfjagerð undir handleiðslu og á ábyrgð lyfjafræðings.3. gr.
Heimilt er að veita lyfjatækni takmarkaðan og staðbundinn afgreiðslurétt úr lyfjaforða, sbr. 24. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982.
4. gr.
Óheimilt er að ráða til lyfjatæknisstarfa aðra en þá, sem heilbrigðismálaráðherra hefur veitt starfsréttindi hér á landi, sbr. ákvæði laga nr. 64/1971 um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir.5. gr.
Um viðurlög við brotum í starfi lyfjatækna gilda ákvæði laga nr. 64/1971 um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir svo og laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 eftir því sem við á.6 gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimildum í 15. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 og lögum um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir nr. 64/1971, öðlast þegar gildi.Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
8. apríl 1983.
F. h. r.
Jón Ingimarsson.
8. apríl 1983.
F. h. r.
Jón Ingimarsson.
Ingolf J. Petersen.
