Málaflokkar
Málaflokkar
Heilbrigðisráðuneytið hefur á hendi yfirstjórn, heildarstefnumótun og framkvæmd þeirra mála er undir það heyra skv. reglugerð nr. 177/2007 um Stjórnarráð Íslands (pdf opnast í nýjum glugga). Samkvæmt reglugerðinni fer ráðuneytið með mál er varða heilbrigðisþjónustu, þar á meðal lýðheilsu og forvarnir s.s. geislavarnir; heilsugæslu; sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum; endurhæfingar- og meðferðarstofnanir; lyf og lækningatæki; starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu og löggildingu starfsheita í heilbrigðisgreinum. Ráðuneytið fer einnig með sjúkra- og slysatryggingar almannatrygginga og sjúklingatryggingu.
Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands hefur ráðuneytið einnig eftirlit með starfrækslu stofnana sem undir það ber og eignum á vegum þeirra stofnana.
Helstu málaflokkar á ábyrgð ráðuneytisins eru:
Áætlunar- og þróunarmál
Heildarstefnumótun í heilbrigðismálum, gæðamál, upplýsingatæknimál og önnur þróunarverkefni innan heilbrigðisþjónustunnar.
Fjármál
Fjárlagavinna heilbrigðiskerfisins, áætlanagerð og eftirlit með framkvæmd fjárlaga hjá stofnunum ráðuneytisins.
Forvarnir
Málefni er fjalla um forvarnarstarf í heilbrigðisþjónustunni s.s. áfengis-, tóbaks- og vímuefnavarnir.
Heilsugæsla og sjúkrahús
Málefni er varða rekstur og þjónustu heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa, ásamt samskiptum á milli mismunandi þjónustuþátta.
Lyfjamál
Eftirlit með framboði, gæðum, öryggi, þjónustu og kostnaði lyfja.
Lögfræðileg málefni
Undirbúningur lagafrumvarpa, setning reglugerða og annara stjórnvaldsfyrirmæla ráðuneytisins ásamt túlkun á þeim lagareglum sem eru í gildi.
Sjúkra- og slysatryggingar
Gerð lagafrumvarpa og reglugerða ásamt öðrum verkefnum sem tengjast sjúkra- og slysatryggingum.

