Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisþjónusta
Skv. reglugerð um Stjórnarráð Íslands er heilbrigðisþjónusta eitt af meginverkefnum heilbrigðisráðuneytisins. Í lögum nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Markmið laganna er að allir landsmenn eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði í samræmi við þau lög, lög um almannatryggingar, lög um réttindi sjúklinga og önnur lög eftir því sem við á.
Samkvæmt lögunum fer heilbrigðisráðherra með yfirstjórn heilbrigðismála. Lögin eiga að tryggja stefnumótunarhlutverk ráðherra sem og fullnægjandi valdheimildir hans á hverjum tíma til að framfylgja stefnu sinni um skipulag heilbrigðisþjónustu, forgangsröðun verkefna innan hennar, hagkvæmni, gæði og öryggi þjónustunnar og aðgengi að henni.
Heilbrigðisþjónusta skal veitt á viðeigandi þjónustustigi og heilsugæslan skal að jafnaði vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Landinu er skipt upp í heilbrigðisumdæmi samkvæmt reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi. Í hverju heilbrigðisumdæmi er starfrækt heilbrigðisstofnun eða heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í umdæminu. Þrátt fyrir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi skulu sjúklingar „jafnan eiga rétt á að leita til þeirrar heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni“.
Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga skv. lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði og skal í hverju heilbrigðisumdæmi starfrækt ein eða fleiri heilbrigðisstofnanir.
Samkvæmt lögum um landlækni nr. 41/2007 er embætti landlæknis starfrækt með það að markmiði að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að heilbrigði landsmanna. Landlæknir skal hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu í landinu, vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu, safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu og sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustunnar.
- Gildandi lög um heilbrigðisþjónustu
- Reglugerðir um heilbrigðisþjónustu
- Heilbrigðisumdæmi
- Sóttvarnaumdæmi
- Heilbrigðisstofnanir
- Heilsugæslustöðvar
- Sjúkra- og slysatryggingar
