Fjármál

Fjármál

Til fjármála málefna heilbrigðisráðuneytisins telst öll framkvæmd fjárlaga og rekstrarlegt eftirlit með fjármálum stofnana heilbrigðiskerfisins. Þar undir fellur einnig fjárlagagerð, áætlanagerð vegna rekstrar, stofnkostnaðar, sjúkratrygginga og tilfærslur sem tengjast stofnunum sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið. Samningagerð um fjárhagsleg málefni er varða rekstur stofnana sem og samningar um heilbrigðisþjónustu svo sem þjónustu- og árangursstjórnunarsamningar teljast einnig til fjármálalegra málefna heilbrigðisráðuneytisins. Innleiðing greiðslukerfa og fjárhagur tilraunaverkefna eru einnig fjármálaleg málefni heilbrigðisráðuneytis.

Framkvæmd fjármála er á hendi fjármála- og rekstrarsviðs heilbrigðisráðuneytisins.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica