Skipulag

Skrifstofur stefnumótunar heilbrigðismála

Meginhlutverk

Meginhlutverk skrifstofa stefnumótunar heilbrigðismála er að bera ábyrgð á, gera og uppfæra stefnumótandi áætlanir í heilbrigðismálum. Þetta er gert í samvinnu þeirra skrifstofa sem í sameiningu takast á við stefnumótunarvinnu ráðuneytisins og í samvinnu við aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Stefnumótun í heilbrigðismálum felur í sér að vera í stöðugu sambandi og hafa samskipti við stofnanir, önnur ráðuneyti, sveitarfélög og félagasamtök eftir atvikum.

Undir verkefnasvið stefnumótunar í heilbrigðismálum heyra skrifstofur heilbrigðisþjónustu, áætlunar- og þróunarmála og lyfjamála. Skrifstofunum er ætlað að vinna náið saman á sviði stefnumótunar í bráð og lengd. Þær bera ábyrgð á að útfæra og hrinda í framkvæmd stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum. Það er gert með vel skilgreindum tímasettum framkvæmdaáætlunum.

Hjá þessum skrifstofum liggur ábyrgð á faglegri þróun heilbrigðisþjónustu, utan og innan heilbrigðisstofnana, þar með talið í lyfjamálum, lýðheilsumálum, upplýsingatækni og lækningatækjum. Það er á ábyrgð þessarra skrifstofa að leggja mat á hagkvæmni og árangur veittrar heilbrigðisþjónustu, meta kostnaðarþróun, mannaflaþörf og menntunarþörf. Skrifstofur stefnumótunar heilbrigðismála bera ábyrgð á að skilgreina þörf ráðuneytisins fyrir tölfræðilegar upplýsingar og sjá um að þær séu aðgengilegar innan ráðuneytisins. Sinnt er gæðamálum, rannsóknum og nýsköpun m.a. með undirbúningi tilraunaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Skrifstofur stefnumótunar veita einnig öðrum skrifstofum ráðuneytisins faglega ráðgjöf.

Skrifstofur stefnumótunar hafa umsjón með erlendum samskiptum og samstarfi í málaflokkum er varða verkefni þeirra, s.s. WHO, EFTA, ESB og Norðurlandasamstarf.

  1. Skrifstofa heilbrigðisþjónustu
  2. Skrifstofa lyfjamála
  3. Skrifstofa áætlana- og þróunarmála

Netföng starfsmanna heilbrigðisráðuneytisins


Uppfært 12. ágúst 2010


Þetta vefsvæði byggir á Eplica