Starfssvið

Ráðuneyti


Heilbrigðisráðuneytið var formlega stofnað 1. janúar 1970, með gildistöku laga um Stjórnarráð Íslands nr. 73/1969 undir heitinu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Með lögum nr. 109/2007 um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands nr. 73/1969 var heiti ráðuneytisins breytt í heilbrigðisráðuneyti og tók nafnbreytingin gildi þann 1. janúar 2008.

Heilbrigðisráðuneytið hefur á hendi yfirstjórn, heildarstefnumótun og framkvæmd þeirra mála er undir það heyra skv. reglugerð nr. 177/2007 um Stjórnarráð Íslands (pdf opnast í nýjum glugga). Samkvæmt reglugerðinni fer ráðuneytið með mál er varða heilbrigðisþjónustu, þar á meðal lýðheilsu og forvarnir, þ.m.t. geislavarnir; heilsugæslu; sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum; endurhæfingar- og meðferðarstofnanir; lyf og lækningatæki; starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu og löggildingu starfsheita í heilbrigðisgreinum. Ráðuneytið fer einnig með sjúkra- og slysatryggingar almannatrygginga og sjúklingatryggingu.
Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands hefur ráðuneytið einnig eftirlit með starfrækslu stofnana sem undir það ber og eignum á vegum þeirra stofnana.


Heilbrigðisráðherra, Guðbjartur Hannesson fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.

Ráðuneytisstjóri, Berglind Ásgeirsdóttir, stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Starfsemi ráðuneytisins skiptist í yfirstjórn, sex skrifstofur og þjónustuskrifstofu. Skrifstofurnar eru; Skrifstofa fjármála og rekstrar, Skrifstofa laga og stjórnsýslu, Skrifstofa upplýsingamála og Skrifstofur stefnumótunar heilbrigðismála sem skiptast í Skrifstofu heilbrigðisþjónustu, Skrifstofu lyfjamála og Skrifstofu áætlunar- og þróunarmála.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica