Starfsréttindi heilbrigðisstétta
ATH. frá 1. apríl 2008 er útgáfa starfsleyfa heilbrigðisstétta á hendi landlæknis. Umsóknareyðublöð, leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem fylgja skulu umsóknum um starfsleyfi eru á vef Landlæknisembættisins.
Heilbrigðisstéttir njóta lögverndaðs starfsheitis skv. lögum nr. 24/1985 og þurfa starfsleyfi til að starfa hér á landi. Í lögum nr. 12/2008 um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings á útgáfu starfsleyfa til landlæknis sem samþykkt voru á Alþingi 4. mars 2008 er kveðið á um að landlæknir gefi út starfsleyfi heilbrigðisstétta frá og með 1. apríl 2008.
Eyðublöð fyrir umsóknir um starfsleyfi, sérfræðingsleyfi og vottorð um starfsleyfi eru nú aðgengileg á vefsíðum fyrir viðkomandi heilbrigðisstéttir á vef Landlæknisembættisins. Þar eru einnig leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem þurfa að fylgja umsóknum, eftir því sem við á um hvert starfsheiti.
ATH. Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest á lögreglustöðvum og hjá sýslumanni.
|
|
|
|
| Tanntæknar | ||
| Þroskaþjálfar | ||
