Stofnanir
Stofnanir á sviði heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið hefur á hendi yfirstjórn, heildarstefnumótun og framkvæmd þeirra mála er undir það heyra skv. reglugerð nr. 177/2007 um Stjórnarráð Íslands (pdf opnast í nýjum glugga). Samkvæmt reglugerðinni fer ráðuneytið með mál er varða heilbrigðisþjónustu, þar á meðal lýðheilsu og forvarnir, s.s. geislavarnir; heilsugæslu; sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum; endurhæfingar- og meðferðarstofnanir; lyf og lækningatæki og starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu. Ráðuneytið fer einnig með sjúkra- og slysatryggingar almannatrygginga og sjúklingatryggingu.
Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands hefur ráðuneytið eftirlit með starfrækslu stofnana sem undir það ber en þær stofnanir sjá um framkvæmd og þjónustu þeirra málaflokka sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið.
Stofnanir sem starfa undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra flokkast í:
- Heilsugæslustöðvar
- Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
- Stofnanir sem sinna eftirliti, lýðheilsu og forvörnum
- Öldrunarstofnanir

