Stofnanir

Heilbrigðisumdæmi

Heilbrigðisumdæmi

Í nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar og um skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi. Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga skv. lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði.

Í samræmi við það hefur heilbrigðisráðherra sett reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi, með (1.) breytingu nr. 765/2008 og (2.) breytingu nr. 1084/2008, þar sem kveðið er á um skiptingu landsins í eftirfarandi heilbrigðisumdæmi:

  • Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins.
  • Heilbrigðisumdæmi Vesturlands.
  • Heilbrigðisumdæmi Vestfjarða.
  • Heilbrigðisumdæmi Norðurlands.
  • Heilbrigðisumdæmi Austurlands.
  • Heilbrigðisumdæmi Suðurlands.
  • Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja

Samkvæmt reglugerðinni skulu heilbrigðisstofnanir innan heilbrigðisumdæma hafa samráð um:

  1. skipulag heilsugæslu í umdæminu með það að markmiði að tryggja öllum íbúum aðgengi að heilsugæslu í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga,
  2. skipulag hjúkrunarþjónustu í heimahúsum, hjúkrunarrýmum stofnana og á hjúkrunarheimilum með það að markmiði að allir íbúar í umdæminu eigi kost á fullnægjandi hjúkrunarþjónustu í samræmi við þarfir sínar,
  3. skipulag almennrar sjúkrahúsþjónustu í umdæminu.

Landlæknisembættið hefur unnið kort sem sýnir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi samkvæmt reglugerðinni.
ATH. að kortið er á pdf formi á vef Landlæknisembættisins og opnast í nýjum glugga þegar smellt er á myndina.

Kort með skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi





Þetta vefsvæði byggir á Eplica