Stofnanir

Sóttvarnarumdæmi

Sóttvarnaumdæmi

Í 4. gr. sóttvarnarlaga nr. 19/1997 með síðari breytingum, segir að embætti landlæknis beri ábyrgð á framkvæmd sóttvarna og að þar skuli starfa sóttvarnalæknir sem beri ábyrgð á sóttvörnum. Þar segir einnig að sóttvarnalæknir skuli hafa samvinnu við yfirlækna heilsugæslu og aðra starfsmenn og stofnanir heilbrigðisþjónustunnar og að ráðherra ákveði með reglugerð hvaða yfirlæknar heilsugæslu skulu vera ábyrgir fyrir sóttvörnum undir stjórn sóttvarnalæknis.

Þann 4. september 2007 setti heilbrigðisráðherra reglugerð nr. 834/2007 um tilnefningu yfirlækna heilsugæslustöðva til að sinna sóttvörnum. Í reglugerðinni er landinu skipt í eftirfarandi sóttvarnarumdæmi:

  • Höfuðborgarsvæðið (Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes)
  • Norðurland (frá Húnaþingi vestra til Langanesbyggðar að báðum meðtöldum)
  • Austurland (frá Vopnafjarðarhreppi til Sveitarfélagsins Hornafjarðar að báðum meðtöldum)
  • Suðurland (frá Skaftárhreppi til Sveitarfélagsins Ölfuss að báðum meðtöldum)
  • Vestmannaeyjar
  • Vesturland (frá Hvalfjarðarsveit til Dalabyggðar að báðum meðtöldum)
  • Vestfirðir (frá Reykhólahreppi til Strandabyggðar að báðum meðtöldum)
  • Suðurnes (Keflavíkurflugvöllur, Grindavík, Sandgerði, Garður, Reykjanesbær, Vogar).

Samkvæmt reglugerðinni tilnefnir ráðherra yfirlækna heilsugæslustöðva eftir tillögu sóttvarnalæknis og skulu þeir vera ábyrgir fyrir sóttvörnum í sínu umdæmi undir stjórn sóttvarnalæknis. Tilnefna má fleiri en einn yfirlækni í hverju sóttvarnaumdæmi.

Landlæknisembættið hefur unnið kort sem sýnir skiptingu landsins í sóttvarnarumdæmi samkvæmt reglugerðinni. Kortið er unnið í október 2007.
ATH. að kortið er á vef Landlæknisembættisins og opnast í nýjum glugga þegar smellt er á myndina.

Kort yfir sóttvarnaumdæmi á vef Landlæknisembættisins




Þetta vefsvæði byggir á Eplica