Öldrunarstofnanir

Stofnanaþjónusta fyrir aldraða

Í lögum nr. 125/1999 um málefni aldraðra eru stofnanir fyrir aldraða skilgreindar, aðstöðu lýst og grein gerð fyrir þjónustunni sem þar skal veitt. Annars vegar er um að ræða dvalarrými, þ.e. dvalarheimili, sambýli og íbúðir, sérhannað fyrir þarfir aldraðra sem ekki eru færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu. Hins vegar er um að ræða hjúkrunarrými, þ.e. hjúkrunarheimili eða hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum fyrir aldraða einstaklinga sem eru of lasburða til að dveljast á dvalarheimilum, sambýlum eða í sérhönnuðum íbúðum.

Í reglugerð nr. 544/2008 um mat á heilsufari og aðbúnaði íbúa í hjúkrunarrýmum er kveðið á um að heilsufar og aðbúnaður einstaklinga í hjúkrunarrýmum skuli metið árlega og að matið skuli byggt á RAI mælingum. Heilbrigðisráðherra skipar RAI-matsnefnd sem skal hafa umsjón með RAI-mati og notkun þess á hjúkrunarrýmum.

Í lögum um aldraða kemur einnig fram að engan megi vista til langdvalar á stofnun fyrir aldraða nema að undangengnu mati á vistunarþörf. Heilbrigðisráðherra skipar þriggja manna nefndir til að meta vistunarþörf og skulu nefndirnar „skipaðar lækni með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunarfræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu og félagsráðgjafa með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða sem tilnefndur er af félags- og tryggingamálaráðherra. Skipa skal þrjá varamenn sem uppfylla sömu menntunarskilyrði og aðalmenn“. Nánar er kveðið á um vistunarmat, fjölda nefnda og starfssvæði þeirra í reglugerð nr. 1262/2007 um vistunarmat.

Í reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, með áorðnum breytingum, er tiltekið hvernig greiðslum dvalarkostnaðar á stofnunum fyrir aldraða skuli háttað. Í reglugerð nr. 1256/2007 um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2008, er kveðið á um upphæðir daggjalda til að mæta eðlilegum rekstrarkostnaði án viðhalds húsnæðis fyrir árið 2008.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica